Við bjóðum þér umhverfisvæna valkosti á meðan ökutækið þitt er í viðgerð. Hægt er að að velja um eingreiðslu inn á bankareikning eða inneign hjá Hopp, fyrir rafskútu eða rafdeilibíl.
Með því að velja umhverfisvænan kost leggur þú þitt af mörkum til að vernda umhverfið. Fyrir hvern viðskiptavin sem velur umhverfisvæna leið mun Sjóvá planta 10 trjám.
Sjóvá hefur lengi lagt sitt af mörkum til að stuðla að sjálfbærni og vernd umhverfisins, auk þess sem við höfum lengi unnið að margvíslegum samfélagslegum verkefnum. Hlutverk okkar er að tryggja verðmætin í lífi fólks og ramminn utan um þau er ávallt samfélagið í heild sinni. Þess vegna er það okkur hjartans mál að starfa í fullri sátt við samfélag og umhverfi og leggja okkar af mörkum til að auka sjálfbærni á öllum sviðum.