Leiðsögumenn þurfa að huga að mörgu þegar þeir fara með fólk um íslenska náttúru. Eftirfarandi atriði geta hjálpað leiðsögumönnum að sinna starfi sínu vel og af ábyrgð.
Það þarf að huga að mörgu þegar leiða á hóp fólks um íslenska náttúru. Hópar geta verið eins misjafnir og þeir eru margir. Fólk kemur úr ólíkum áttum, er í misjöfnu líkamlegu formi, á misjöfnu aldursbili og því ýmislegt sem getur spilað inn í. Vegna þessa hvílir mikil ábyrgð á leiðsögumönnum að lesa hópinn rétt og leiðbeina honum þannig að allir skili sér heilir úr ferðinni.
Við höfum leitað ráðgjafar hjá Helga Jóhannessyni, reyndum leiðsögumanni og lögfræðing, og í sameiningu sett saman myndband fyrir leiðsögumenn varðandi öryggisatriði sem gott er að hafa í huga þegar farið er með hópa í ferðir.
Myndbandið má sjá í spilaranum hér að ofan.