Hverjir kaupa starfsábyrgðartryggingu?
Starfsábyrgðartryggingar eru fyrst og fremst ætlaðar sérfræðingum og fagstéttum sem bjóða sérhæfða þjónustu. Sumar starfsstéttir eru skyldaðar til að kaupa starfsábyrgðartryggingu samkvæmt lögum.
Mistök sem verða við framkvæmd umsaminnar þjónustu eða verks geta leitt til skaðabótaskyldu. Hægt er að tryggja sig gegn slíku tjóni með starfsábyrgðartryggingu.
Starfsábyrgðartryggingar eru fyrst og fremst ætlaðar sérfræðingum og fagstéttum sem bjóða sérhæfða þjónustu. Sumar starfsstéttir eru skyldaðar til að kaupa starfsábyrgðartryggingu samkvæmt lögum.
Einstaklingum og fyrirtækjum í neðangreindri starfsemi ber skylda samkvæmt lögum að kaupa starfsábyrgðartryggingar
Starfsábyrgðartryggingar eru líka í boði fyrir tilteknar starfstéttir sem eru ekki skyldaðar til að kaupa slíkar tryggingar. Þessar starfsstéttir eru:
Fólk sem þarf á þjónustu sérfræðinga að halda á kröfu á að sú þjónusta sé veitt af fagmennsku. Verði sérfræðingi á mistök við vinnu sína getur skjólstæðingur hans orðið fyrir fjártjóni.
Starfsábyrgðartrygging lögmanns
Lögmanni varð það á að lýsa kröfu í þrotabú eftir að tilskilinn frestur til þess var liðinn. Skiptastjóri þrotabúsins vísaði kröfunni frá og eigandi kröfunnar varð þannig fyrir fjárhagslegu tjóni. Talið var að um vanrækslu lögmannsins væri að ræða og bætti starfsábyrgðartrygging lögmannsins tjón skjólstæðings hans.
Starfsábyrgðartrygging byggingarstjóra
Við byggingu íbúðarhúss var drenlögn hússins ekki lögð samkvæmt teikningum hönnuða. Byggingarstjórinn var talinn bera ábyrgð á þessum mistökum. Starfsábyrgðartrygging byggingarstjóra greiddi kostnað við lagfæringu drenlagnarinnar.