Viðskiptavinir í Stofni fá afslátt af bílaleigubíl hjá Hertz bæði innanlands og erlendis. Tilboðið gildir eingöngu um bíla í skammtímaleigu.
Hertz bílaleiga býður viðskiptavinum í Stofni 20% afslátt af bílaleigubílum innanlands. Til að nýta afsláttinn þarf að sækja afsláttarkóða inni á Mínum síðum, kóðann er hægt að nýta við leigu á heimasíðu Hertz eða í gegnum síma.
Hertz bílaleiga býður viðskiptavinum í Stofni allt að 15% afslátt af bílaleigum erlendis, afslátturinn er þó misjafn eftir löndum og á hvaða árstíma bíllinn er leigður.
Hægt er að sækja kóða til að nýta afsláttinn inni á Mínum síðum. Kóðann er hægt að nota við bókun á heimasíðu Hertz.
Við leigu á bíl innanlands hjá Hertz geta viðskiptavinir í Stofni fengið 1000 vildarpunkta hjá Icelandair. Taka þarf fram við leigu að viðskiptavinur sé í Stofni og sýna staðfestingu sem er að finna á Mínum síðum.
Viðskiptavinir í Stofni sem lenda í ökutækjatjóni geta fengið stærri bíl en úthlutað er gegn vægu auka gjaldi. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um þessa þjónustu inni á Mínum síðum.
Viðskiptavinir í Stofni sem kaupa bíl hjá Bílasölu Hertz fá eldsneytiskort frá Olís að verðmæti 110.000kr. Taka þarf fram við kaup að viðskiptavinur sé í Stofni, ekki er hægt að fá kaupaukann eftir kaupin. Staðfestinguna má finna á Mínum síðum.
Lendi Stofn-viðskiptavinur í ökutækjatjóni þar sem viðgerðardagar fara yfir 7 daga, sem er hámark bílaleigudaga í tjónsviðgerð, er hægt að óska eftir einum auka degi sé bíll leigður hjá Hertz.