Dæmi um nokkur tjónsatvik sem eru bætt úr Kaskótryggingu hjá Sjóvá en ekki úr hefðbundnum Kaskótryggingum annarra
Tjónsatburður | Okkar Kaskótrygging | Kaskótrygging hjá öðrum |
---|---|---|
Hlutir falla á ökutækið Dæmi: Ef hluti farms fellur af vörubíl á ökutækið eða ef eitthvað fellur t.d. af þaki, vegg eða í bílskúr á ökutækið og skemmir það. |
Bætt | Ekki bætt |
Snjór eða grýlukerti falla af þaki eða þakköntum húsa á ökutækið Dæmi: Þú leggur ökutækinu við verslun og grýlukerti fellur af þaki verslunarinnar á ökutækið. |
Bætt | Ekki bætt |
Fok Dæmi: Eitthvað fýkur á ökutækið og skemmir það (annað en jarðefni). |
Bætt | Einungis bætt í ofsaveðri |
Búfénaður skemmir ökutækið Dæmi: Skemmdir vegna sauðfjár, hesta, hreindýra og nautgripa. Þekkt eru dæmi þess að hestar naga bíla. |
Bætt | Ekki bætt eða háð takmörkunum |
Bolti eða önnur leikföng skemma ökutækið Dæmi: Fótbolta er sparkað í bíl og rispar eða dældar hann. |
Bætt | Mismunandi |
Þjófnaður á einstökum hlutum ökutækis Dæmi: Dekk, felgur o.fl. |
Bætt | Einungis hljómtæki bætt |
Málning skemmir lakk á bíl Dæmi: Málning úðast yfir bíl sem lagt er við hús sem verið er að mála eða ekið er yfir blauta vegamálningu. |
Bætt | Ekki bætt |
Skemmdir af völdum snjó- og hálkueyðingar Dæmi: Ökutækið verður fyrir skemmdum af völdum salt- eða sanddreifingarbíls við hálkuvarnir eða snjóruðningstæki við snjómokstur. |
Bætt | Ekki bætt |