Skemmdir á bílrúðum eru algengari en marga grunar og því er full þörf á bílrúðutryggingu.
Við gefum alltaf Bílrúðutryggingu út með lögboðinni ökutækjatryggingu en þú hefur val um að sleppa henni. Tryggingin bætir allar rúður hvort sem það eru fram-, aftur- eða hliðarrúður, en tjón á framrúðum eru algengust.
Ef þú lendir í rúðutjóni er í sumum tilfellum hægt að gera við rúðuna án þess að skipta um hana. Þegar gert er við rúðuna þarft þú ekki að greiða eigin áhættu, en ef skipt er um rúðu er eigin áhætta 15% af kostnaði fyrir nýja rúðu og ísetningu.