Yfirlit yfir tryggingu
Þar sem brunatrygging er lögboðin trygging þurfa eigendur að tryggja allar húseignir gegn eldsvoða hvort sem um er að ræða hús í byggingu eða fullbúið hús. Þetta gildir um allar tegundir húsnæðis svo sem íbúðarhúsnæði, bílageymslur, atvinnuhúsnæði, útihús, sumarhús eða hesthús. Þegar þú kaupir fasteign hjá fasteignasölu sendir fasteignasalinn tilkynningu um eigendaskipti til Fasteignaskrár, en annars þarf eigandi sjálfur að ganga frá beiðni um tryggingu.
Tryggingarfjárhæð brunatryggingarinnar miðast við brunabótamat húseignar eins og það er skráð hjá fasteignaskrá. Ef þú telur að matið á húseign sé ekki rétt, til dæmis vegna verulegra endurbóta eða viðbyggingar frá því að eignin var metin síðast, getur þú pantað endurmat hjá fasteignaskrá.